17.5.2013 | 18:00
Áttu eftir að borga?
Móttökureikningur vegna fagnaðarins:
Kennitala: 601290-1899
Reikningsnúmer: 0372-13-111033
Aðgangseyrir 9.000 kr. fyrir útskrifaða snillinga úr MT 1973, og 7.000 kr. fyrir maka.
Þeir sem ekki komast en vilja fá Tirnu 3 senda heim leggja 2.000 kr. inn.
Minningarsjóður Björns Bjarnasonar rektors, framlög stúdenta úr MT 1973:
Kennitala: 010553-2539
Reikningsnúmer: 0372-13-905308
Hlutverk minningarsjóðsins er að styðja og verðlauna efnilega útskriftarnemendur úr MS.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.1.2013 | 21:20
40 ára stúdentsafmælinu fagnað 25. maí 2013
Undirbúningsnefndin ákvað á sínum fyrsta fundi í dag að negla laugardaginn 25. maí niður til að fagna 40 ára stúdentsafmælinu í miðborg Reykjavíkur - frá því síðdegis og fram á nótt.
Meira síðar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.5.2008 | 21:56
Munið að skoða myndirnar
Sæl öll.
Eitthvað er komið af myndum á myndasíðuna. Skoðið endilega, slóðin er: http://mt1973.blog.is/album/.
Ef þið eigið í vandræðum með að lesa blaðaúrklippurnar, þá má einnig sjá þær hér, þar sem hægt er að stækka letrið á auðveldan hátt. http://mt1973.blog.is/users/66/mt1973/files/c_bladaurklippur.pdf
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.5.2008 | 12:23
Síðustu forvöð að bóka sig
Halló, halló
35 ára stúdentafagnaðurinn er á morgun, laugardaginn 24. maí. Ef einhver hefur áhyggur af að missa af Júróvisjón, þá má skilja þær (áhyggjurnar) eftir heima, því við munum bregða upp á tjald útsendingu frá flutningi Júróbandsins á "This is my life" og sömuleiðis lokaúrslitum talningarinnar.
Til að við getum af öryggi tryggt rétt framboð af mat og drykk, þá þurfa allir að klára að tilkynna sig og borga aðgangseyrinn, 6.500 kr. Ekki er lengur hægt að bóka sig á miða.is heldur þarf að hringja í Iðnó í miðasöluna 562-9700. Þar er formlega opið til kl. 16 virka daga. Hugsanlega verður þó svarað þar í símann í kvöld og sömuleiðis eftir hádegi á morgun, laugardag.
Þeir sem eru seint á ferðinni verða því að láta bekkjarfulltrúa sína vita sem allra fyrst og borga þegar þeir koma á fagnaðinn á morgun. Ef fólk lætur ekki vita af sér í dag, föstudag, þá er ekki öruggt að það komist inn á morgun vegna þess að ekki hefur verið gert ráð fyrir því í mat og drykk.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.5.2008 | 18:30
35 ára stúdentafagnaður MT-inga 1973 í Iðnó laugardaginn 24. maí
Kæru samstúdentar!
Þann 24. maí nk. höldum við upp á 35 ára stúdentsafmæli okkar. Afmælisnefndin sem hefur verið látlaust að störfum vinnur nú að lokaundirbúningi afmælisveislunnar. Í nefndinni eru þeir sem áttu að undirbúa árs afmælið okkar og af einhverjum ástæðum eru flestir enn í nefndinni.
Við vonumst auðvitað til að sem flestir 1973 stúdentar (og makar) sjái sér fært að hittast við þessi tímamót.
Dagskráin verður sem hér segir:
Staður og dagur:
Í Iðnó, laugardaginn 24. maí 2008.
Hátíðin hefst kl. 18 með fordrykk (rauðvín, hvítvín eða bjór).
Um kvöldið verða á boðstólum hinir víðfrægu og gómsætu tapasréttir Iðnó. Enginn fer svangur frá þessari samkomu, ekki einu sinni Karíus og Baktus.
- Léttir gítartónar meðan gestir streyma að - Vilhjálmur Vilhjálmsson (sonur Villa Guðjóns og Louisu) - og kannski tekur pabbi í bassann.
- Slædsmyndasýning sem vekur sætar minningar og stöku flökur.
- Ræðumaður kvöldsins: Jörundur Svavarsson úr T-bekknum.
- Ávarp kennara: Siggi saga.
- Valgeir Guðjónsson, eiginmaður Ástu K., tekur lagið og beinir því rétta leið.
- Kökubandið kemur fram í fyrsta sinn í 15 ár - þeir hafa engu gleymt og ekkert lært.
- sérstakur gestur á tónleikum Kökubandsins:
stórsöngvarinn Guðbjörn Björgólfsson (úr B-bekknum)
- Afkvæmakynning: Edda Björg Eyjólfsdóttir leikkona (dóttir Habbýjar úr C-bekknum) lætur móðan mása - ekkert fer á milli mála hvaðan hún hefur erft hæfileikana.
- Nostalgísk tónlist í bland við nýrri - DJ Stefán Magnússon þenur vínil, diska og plötur og USB lykla í Terabætavís.
Veislustjóri: Hulda Karen Daníelsdóttir úr B-bekknum
Barþjónusta að hætti hússins.
Gert er ráð fyrir að samkvæminu verði lokið um eða eftir miðnætti og þá geta allir haldið út í vornóttina.
Kostnaður, skráning og greiðsla:
Hátíðin hér að ofan kostar aðeins kr. 6500-.
Til að við vitum fyrir vissu hverjir ætla að koma (til að panta mat), biðjum við ykkur að ganga frá greiðslu á Miði.is sem fyrst með því að smella á þessa einkaslóð fyrir þennan fagnað: http://midi.is/atburdir/1/5197/?preview=1
Ekki þarf að sækja aðgöngumiða, nöfn þeirra sem hafa borgað verða á lista við innganginn.
Gjöf til skólans, framlag í minningarsjóð Björns Bjarnasonar:
Árið 2003, þegar við vorum miklu yngri, stofnuðum við sjóð til minningar um Björn Bjarnason rektor. Sjóðurinn verðlaunar árlega góða nemendur með bókagjöfum og styrkjum. Nefndin leggur til að hver MT-1973-ingur gefi í sjóðinn 3.500 íslenskar krónur (ódýrar um þessar mundir). Inn á heimabankann ykkar mun á næstunni berast krafa fyrir þessari upphæð. Greiðslan fer beint inn á reikning sjóðsins, sem er í vörslu skólans. Ræktum minningu Björns og skóladvalar okkar með framlagi i sjóðinn!
Þeir sem vilja borga í sjóðinn verða að hafa hraðar hendur, því krafan í heimabankanum mun aðeins standa þar til loka maí.
Bloggar | Breytt 14.5.2008 kl. 15:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.5.2008 | 14:59
Aðgöngumiðinn á Miði.is
Til að hafa á hreinu hverjir ætla að mæta á fagnaðinn, hefur sérstök miðasala verið sett upp á Miði.is - bara að smella á þessa slóð
Hægt er að borga með kreditkorti. Aðgangseyrir er 6.500 kr. á mann og nánari lýsing á því í dagskránni hvað er innifalið. Ekki þarf að sækja aðgöngumiða, heldur verður listi með nöfnum greiðenda við innganginn í Iðnó.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.3.2008 | 23:35
35 ára stúdentsafmæli!
Kæru samstúdentar!
Þann 24. maí nk. höldum við upp á 35 ára stúdentsafmæli okkar. Afmælisnefndin sem hefur verið látlaust að störfum vinnur nú að lokaundirbúningi afmælisveislunnar. Í nefndinni eru þeir sem áttu að undirbúa árs afmælið okkar og af einhverjum ástæðum eru flestir enn í nefndinni.
Við ætlum að hittast í Iðnó, steinsnar frá gamla skólahúsinu. Dagskráin er enn í þróun, en tímasetningar liggja fyrir. Byrjum klukkan 18.00 og skröltum eitthvað framyfir miðnætti. Þetta verður ekki formlegt borðhald eins og svo oft áður, heldur verða matur og drykkur á sveimi yfir og allt um kring. Þannig verður miklu betra flæði á mannskapnum og hægt að hitta fleiri. Að sjálfsögðu verða ræður, skemmtiatriði og tónlist.
Kostnaði verður stillt í hóf og samið hefur verið við midi.is um skráningu og greiðslu. Meira um það síðar.
Með þessari bloggsíðu gefst mönnum tækifæri að láta í sér heyra og segja frá hvað hefur á daga þeirra drifið til að byggja upp umræðugrundvöll fyrir partíið. Einnig er ætlunin að birta hér myndir frá sokkabandsárunum, rifja upp gamlar minningar og gera hvaðeina sem hugurinn girnist.
Áður en langt um líður verður svo endanleg dagskrá birt. En takið frá 24. maí.
Bloggar | Breytt 24.3.2008 kl. 17:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
Tenglar
Mínir tenglar
- Nemanet.is Hérna er hægt að finna alla stúdenta ársins 1973 frá MT. Aðgangs- og lykilorð: mt73
- Saga Menntaskólans við Tjörnina Stutt en góð grein um sögu MT
Undirbúningsnefndin
Nöfn og netföng þeirra sem stússast í undirbúningnum. Uppfært í janúar 2013.
-
Hulda Karen Daníelsdóttir
hulda.karen.danielsdottir (hja) reykjavik.is -
Arnfríður Ólafsdóttir
arnfriduro (hja) gmail.com -
Þórólfur Halldórsson
thorolfur hja syslumenn.is -
Vilhjálmur Guðjónsson
villi hja mmedia.is -
Skúli Guðmundsson
skuli.gudmundsson hja irr.is -
Rafn Jónsson
rabbi hja centrum.is -
Páll Benediktsson
pallb hja lbi.is -
Ólafur Hauksson
olafur hja proforma.is -
Hlín Agnarsdóttir
b50 hja simnet.is -
Helga Harðardóttir
sigluvog hja mi.is -
Guðlaug Richter
gudlaug hja ennemm.is -
Eysteinn Haraldsson
eysteinn hja gardabaer.is -
Eiríkur Guðmundsson
eirikur hja skjalasafn.is -
Benedikt Einar Gunnarsson
begem hja simnet.is -
Ásta K. Ragnarsdóttir
asta hja nema.is -
Árni Bragason
arni.bragason hja nordgen.org -
Axel Skúlason
axelsku hja hotmail.com